Velkominn í Talnavinnsluna

það er hér sem þú færð persónulega hjálp með stærðfræði eða tölfræði.

Um kennarann

Ég heiti Gunnar Björn og  er stærðfræðingur að mennt með kennsluréttindi. Auk þess hef ég tekið viðbótarnám í tölfræði á meistarastigi.Ég hef áratuga reynslu af kennslu í stærðfræði og tölfræði, auk þess að hafa kennt í nokkrum framhaldsskólum á Íslandi. Ég legg mikla áherslu á að sýna nemendum virðingu og mæta þeim eins og þeir eru.

Ég reyni alltaf að nota orðalag sem nemendinn þekkir enda þekkir fólk stærðfræðileg hugtök mis vel. Sumir eru með dæmi sem þeir vilja að ég fjalli um með þeim á meðan aðrir vilja umfjöllun um ákveðin viðfangsefni. Ég tek vel á móti öllum sem vilja hjálp eða samstarf við mig.

Ég legg mikla áhersla á að öllum liði vel í samskiptum og kennslu hjá mér. Enginn getur allt en allir geta eitthvað. Þú þarft bara að segja mér hvað þig vantar hjálp með, ég sé svo um að kenna þér það sem þú þarft eða læra eða langar að læra.

Einkakennsla með fjarfundi

Þú getur fengið kennslu á netinu. Þá færðu fundarboð í tölvupósti. Hægt er að taka fundinn upp og þú getur horft aftur á kensluna því hægt er að taka hana upp ef menn vilja.  Hér til hliðar getur séð upptöku af kennslu þegar ég hjálpaði nemanda að leysa tvö ólík dæmi um jöfnuhneppi.

Kennsla í heimahúsi

Ég get komið heim til þín og kennt þér þar. Ég get líka kennt á einhverjum öðrum skilgreindum stað eins og á kaffihúsi, bókasafni eða einhverjum stað sem nemandinn stingur upp á og úthlutar. Yfirleitt rukka ég ekki sérstaklega fyrir akstur. Ég er í Reykjanesbæ svo það er yfirleitt ekkert mál að kenna á Suðurnesjum eða á höfuðborgarsvæðinu, Ef þú býrð eitthvað lengra frá, þá þarf að semja um akstur sérstaklega, en í slíkum tilfellum er oft ágætt að nota þá bara fjarfundinn í staðinn.