Gögn sem segja sögu
Gögn geta sagt mikilvæga sögu — ef þau eru greind og sett fram á skýran hátt. Með viðeigandi tölfræðiaðferðum er hægt að draga fram mynstur, tengsl og breytingar sem annars gætu farið fram hjá okkur og breyta hráum gögnum í upplýsingar sem nýtast við ákvarðanatöku. Mikilvægur hluti þjónustunnar er að niðurstöðurnar séu ekki aðeins tölfræðilega réttar heldur einnig skiljanlegar og vel fram settar. Ég legg því áherslu á skýra myndræna framsetningu og útskýri tölfræðileg hugtök og niðurstöður á aðgengilegu máli.
Tölfræðigreining sem hæfir verkefninu
Ég veiti almenna tölfræðiaðstoð og aðstoða við val á greiningaraðferðum út frá eðli gagnanna og þeim spurningum sem leitað er svara við. Þjónustan getur meðal annars falist í lýsandi tölfræði, myndrænni framsetningu, samanburði hópa og greiningu undirhópa. Einnig býð ég upp á fjölbreyttari tölfræðigreiningar, svo sem línulega aðhvarfsgreiningu, tvíkosta aðhvarfsgreiningu og greiningu endurtekinna mælinga. Slíkar aðferðir henta til dæmis þegar sömu einstaklingum er fylgt eftir yfir tíma, svo sem með endurteknum lestrarprófum eða öðrum reglubundnum mælingum.
Niðurstöður sem auðvelt er að miðla
Góð tölfræðigreining skilar mestum árangri þegar niðurstöðurnar komast skýrt til skila. Ég get kynnt niðurstöður munnlega eða skriflega og útbúið skýrslur og annað efni á formi sem hentar hverju verkefni, til dæmis í Word, PDF eða HTML. Einnig get ég útbúið gagnvirk vefmælaborð þar sem valdar niðurstöður eru settar fram á lifandi og aðgengilegan hátt. Þar getur notandinn til dæmis valið hópa eða tímabil og skoðað töflur, myndir og lykiltölur sem uppfærast í samræmi við valið. Dæmi um vefmælaborð