Stjórnir íþróttafélags

Íþróttafélag rekur deildir. Það eru níu manns í stjórnum þessara deilda. Það þarf að halda einn stjórnarfund fyrir hverja deild. Sumir eru í fleiri en einni stjórn.  Hver stjórnamaður getur bara mætt á einn fund á dag.  Stjórnir deildanna eru svona:

Fótboltadeild: Amelía, Ýma og Hrafn.
Sunddeild: Amelía, Gunnar og Helgi.
Handboltadeild: Ari, Sóley og Helgi.
Körfuboltadeild: Gunnar, Sóley, Katrín og Ýma.
Júdódeild: Gunnar, Ari og Kolfinna.

Búið til fundardagskrá með því að nota eins fáa daga og hægt er. Hvað þarf maður að lágmarki að nota marga daga fyrir þessa fundardagskrá?

Skilja eftir skilaboð

Vinsamlegast athugið að við munum ekki sýna netfangið ykkar öðrum, né nota það til að senda óæskileg tölvupóst. Við munum aðeins nota það til að birta Gravatar myndina ykkar og til að staðfesta ykkur sem raunverulega manneskju.

Gunnar Björn
Gunnar Björn - Sunday, October 4, 2026

Það er ekki hægt að hægt að hafa fótboltadeild og sunddeild á sama deginum því þá þarf Amelía að mæta tvisvar sem gengur ekki. Svo er væntanlega hægt að skoða hvort fleiri árekstrar geti komið upp hjá fólki.